Heilsudagurinn þinn í Hrísey

 

Heilsudagur í Hrísey með Samana og Transform

 

Taktu einn fallegan dag frá fyrir þig til þess að næra þig bæði andlega og líkamlega! 

Samana og Transform taka höndum saman og bjóða upp á yndislegan dag, tileinkaðan sjálfsnæringu og sjálfsuppbyggingu í umvefjandi griðarstað Norðulands, Hrísey.

Þetta er dagurinn þinn. Að eiga slíka stund með sjálfri þér nærir þig að innan sem utan. Áhersla er lögð á kærleiksríkar, uppbyggjandi leiðir sem hjálpa þér að verða besta útgáfan af sjálfum þér, hér og nú. Yndisleg leið til þess að byrja sumarið þitt og setja þér markmið varðandi líðan þína og heilsu.

Frá morgni til kvölds verður þú leidd í gegnum aðferðir til sjálfsstyrkingar, aukinnar þekkingar og færð tækifæri til þess setja þér skýr markmið varðandi heilsu þína og vellíðan.

Dagskrá dagsins:

9:30 - Brottför með Hríseyjarferjunni frá Árskógssandi út í Hrísey.

9:50 - Móttaka á bryggjunni í Hrísey. Arnbjörg Kristín og Hrafnhildur bjóða þig velkomna.

10:00-11:00 - Kynning á deginum og léttur morgunmatur í Jörundarhúsi. Allir fá afhentar sína eigin möppu sem inniheldur heilsutengdan fróðleik ss. markmiðasetningu í heilsu, uppskriftir, jógaæfingar og hugleiðslur fyrir líkama, huga og sál.

11:00 - 12:00 - Kundalini jóga og hugleiðsla ásamt slökun í Sæborg.

12:00-13:30 - Hádegismatur, afslöppun, spjall.
Næringarríkur hádegismatur (allar uppskriftir fylgja)

13:30-14:30 - Gönguhugleiðsla að Orkulind. Þar hugleiðum við og endurnýjum orkuna. Þessi staður veitir frið þeim sem hafa glatað honum í erli daganna. Geislar friðar og elsku streyma frá annarri mestu orkulind landsins, fjallinu Kaldbaki sem gnæfir austan fjarðar.

14:30-16:00 - Hristingakennsla. Þú lærir að útbúa fljótlega, hágæðanæringu. Allir fá nægju sína og uppskriftir að auki.

16:00 - 17:00 - Jóga í vatni

17:00-17:45 - Sýnikennsla í hollu millimáli, smakk og te ásamt uppskriftum.

17:45-18:45 - Markmiðssetning og ásetningur fyrir nánustu framtíð varðandi þína andlegu og líkamlegu heilsu.

19:00 - Brottför frá bryggjunni

Verð kr. 19.500,- Allt innifalið frá því að þú kemur að bryggjunni á Árskógssandi að morgni og þar til Hríseyjarferjan hefur skilað þér endurnærðri til baka um kvöldið.

Að auki fylgir með:
Mappa með uppskriftum, markmiðssetningu, hugleiðslu og jógaæfingum.
Vatnsbrúsi
Lítil stílabók með penna
Gönguhugleiðsludiskur með 4 hugleiðslum á.

Í boði er laugardagurinn 19. maí eða sunnudagurinn 20. maí.
Skráning hjá:
Arnbjörgu Kristínu í s: 862-3700 eða akk@samana.is.
Hrafnhildi Reykjalín í s:899-6207  eða hrafnhildur@transform.is.
Skráningu lýkur 10.maí.

Kærleikskveðjur
Arnbjörg Kristín og Hrafnhildur

www.samana.is og www.transform.is