ATH. Það er fullt í öll prógrömm sem boðið er uppá í einstaklingsþjálfuninni. Því verður ekki hægt að bjóða upp á fría kynningartíma að svo stöddu. Vinsamlegast hafið samband ef áhugi eða þörf er fyrir hendi á stökum tímum í ráðgjöf.
ATHUGIÐ - Síðasta hristinganámskeiðið á þessu ári!
Akureyri - 24. maí frá kl. 19-21.
Skráning á hrafnhildur@transform.is
Velkomin!
Smelltu hér fyrir námskeið í boði
Einmitt hér byrjar ferð þín til betri heilsu, andlegrar og líkamlegrar!
Heilsuþjálfun er virkilega spennandi nýjung í heilsubransanum. Í mínu námi lærði ég um allar helstu kenningar, kúra og tískusveiflur sem snerta matarræði og sú þekking mun hjálpa þér við að komast að því hvað hentar ÞÉR best.
Flestir einblína á kaloríur, fitu, kolvetni, prótein - hvað sé leyfilegt og hvað ekki. Ég vinn ekki eftir þeirri aðferðarfræði, heldur vinn ég að því að auka hamingju þína og heilsu á skemmtilegan, sveigjanlegan hátt sem er laus við allar öfgar og afneitun.
Það hentar ekki öllum að vera á sama matarræðinu. Ég mun leiðbeina þér við að finna hvaða mataræði og lífstíll henta þér best. Ég mun einnig hjálpa þér við að gera smávægilegar lífstílsbreytingar sem gera þér kleift að ná markmiðum þínum, hvort sem þær eru til skemmri eða lengri tíma.
Ég mun m.a. hjálpa þér við að:
- Hafa meiri og jafnari orku yfir daginn
- Finna út hvaða mataræði og hreyfing hentar þér best
- Losna við aukakílóin
- Hjálpa þér við að losna undan boðum og bönnum og fara aftur að njóta matarins
- Minnka stress og streitu og finna meira jafnvægi
- Gera smávægilegar breytingar á lífi þínu til þess að auka hamingju þína um leið og heilsuna!
Byrjum þá!
Hvenær talaðir þú síðast við einhvern um heilsuna þína og fékkst þá athygli sem þú átt skilið?
Það er ekki algengt að fólk geti rætt við fagaðila um næringu og heilsumarkmið sín í heilan klukkutíma - ÁN þess að borga fyrir það. Sem heilsuþjálfi er það mitt hlutverk að styðja þig á þessu ferðalagi og hjálpa þér við að komast að því hvað það er sem virkar best fyrir þig.
Gæti eitt samtal breytt lífi þínu til hins betra?
Þú hefur engu að tapa! Pantaðu hjá mér frían kynningartíma í heilsuþjálfun þar sem við munum ræða saman um heilsu þína og markmið og finna út hvað ég get gert til þess að aðstoða þig við að auka lífsgæði þín, heilsu og hamingju!
ATH. Kynningartímar falla tímabundið niður þar sem fullt er í alla einstaklingsþjálfun á vegum Transform!
Næringar- og lífstílsráðgjöf - Fyrir þína heilsu og hamingju!