Sólarte

Sólarte

Undirbúningstími: 2 mínútur
Eldunartími: 24 tímar
Magn: 2 lítrar

Innihald:
3-4 tepokar að eigin vali
Vatn

Aðferð:
Fylltu stóra glerkrukku af vatni, settu 3-4 poka af þínu uppáhalds te út í vatnið og settu lokið á.
Tylltu krukkunni út í glugga heilan dag, þar sem sólarljósið nær til hennar. Sólargeislarnir beina hita og orku í vatnið sem leysir hið ljúffenga te úr læðingi.
Bragðbættu að vild með náttúrulegum sætuefnum.
Berðu fram volgt eða settu ísmola í krukkuna til að kæla það.
Ath. Sniðugt er að skreyta það með sítrónusneiðum eða myntulaufum.