Sjúkleg súkkulaðikaka

Þessi er í algjöru uppáhaldi hjá mér. Ein besta súkkulaðikaka sem ég hef borðað. Solla á Gló veit hvað hún syngur - en uppskriftina fékk ég hjá henni :)

Ath. Það er alls ekki flókið að gera þessa köku og hún er svo holl að þú ættir í raun að borða bita á hverjum degi!

Botinnn:
100g kókosmjöl
100g möndlur
30g lífrænt kakóduft
250g döðlur, lagðar í bleyti í 10 mín
nokkur himalaya salt korn (má vera hvaða gæðasalt sem er.)

Millilag.
2 bananar í þunnum sneiðum (Það er líka gómsætt að nota aðra ávexti, t.d. bláber og jarðarber)

Fylling:
3 dl kasjúhnetur lagðar í bleyti í 2 klst
1 ½ dl agavesýróp
3/4 dl kaldpressuð lífræn kókosolía
3-4 msk lífrænt kakóduft
1 tsk vanilluduft/dropar
smá himalayasalt

Botninn:
Allt sett í matvinnsluvélina, látið vélina ganga þar til döðlurnar hafa blandast vel inn í kókosmjölið og möndlurnar og allt klístrast saman. Þjappið deiginu í form, hægt er að nota eitt stór hringlaga form eða mörg muffinform, t.d. silkikonform.

Millilag:
Raðið bönununum oná botninn. Sett inn í frysti á meðan fyllingin er búin til.

Fylling:
Blandið saman hnetum, agavesýrópi og kókosolíu (látið heitt vatn renna á kókosolíukrukkuna svo hún verði fljótandi eða látið hana standa í skál með um 45°C heitu vatni í smá stund) þar til það er orðið silkimjúkt. Bætið þá restinni af uppskriftinni útí og blandið mjög vel saman. Hellið fyllingunni í botninn/botnana og látið inn í frysti.