Piparkökurnar hennar Ingu

500 gr mjöl (t.d. mixc/hrísmjöl 1/1 eða spelti)

250 gr hrásykur

250 gr ósaltað smjör. Eða kókosolía

300 gr hlynsýróp

8 tsk vínsteinslyftiduft

1 tsk negull

1 tsk kanill

1 tsk kakó

1 tsk engifer

1 tsk hvítur pipar

1 egg

 

Aðferð:

Blandið öllu saman í hrærivélaskál. Þurrefnum fyrst.

Hnoðað með hnoðkrók.

Fletjið deigið þunnt út og mótið kökur með t.d. jólamunsturs mótum.

Setjið bökunarpappír á plötu og raðið kökunum á og bakið við 170 gráður í ca. 10-12 mín.

 

Uppskriftin er frá Ingu Lóu Birgisdóttur