Piparkökudropar
Gerir um 50 kökur
Innihald
- 290 gr spelti
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- 2,5 tsk kanill
- 1,5 tsk negull (enska: clove)
- 1,5 tsk engifer
- 0,25 tsk múskat (enska: nutmeg)
- 125 ml tahini (sesamsmjör)
- 3 mtsk kókosolía
- 125 ml hreint hlynsíróp (enska: maple syrup)
- 100 gr rapadura hrásykur (eða annar hrásykur)
- 1 tsk vanilludropar (úr heilsubúð)
- 125 bolli sojamjólk (eða önnur mjólk)
Aðferð
- Sigtið saman í stóra skál; spelti, lyftiduft, kanil, negul, engifer og múskat. Hrærið vel.
- Í aðra skál skuluð þið hræra saman hlynsírópi, tahini, kókosolíu, rapadura sykri og vanilludropum. Hrærið vel þannig að allt blandist vel saman og hellið svo út í stóru skálina. Hrærið vel.
- Bætið sojamjólkinni út í smátt og smátt, eins mikið og þið þurfið, það á að vera hægt að hnoða deigið svo það má ekki vera of blautt/klístrað.
- Hnoðið deigið í höndunum (eða í hrærivél með hnoðara). Bætið aðeins meira spelti út í ef þarf.
- Rúllið deiginu í 6 langar pylsur, pakkið inn í plast og kælið deigið í um klukkustund (eða yfir nótt).
- Skerið pylsurnar í um 1,5 sm bita.
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu og raðið piparkökudropunum á plötuna.
- Bakið við 180°C í um 20-25 mínútur.
Gott að hafa í huga
- Athugið að kökurnar eru mjúkar þegar þær koma út úr ofninum en verða harðar þegar þær kólna. Gætið þess að baka þær ekki of lengi svo þær verði ekki eins og grjót.
- Nota má undanrennu, hrísmjólk, haframjólk eða möndlumjólk í staðinn fyrir sojamjólk.
- Ef kókosolían er hörð má stinga krukkunni í heitt vatn í nokkrar mínútur þar til hún verður fljótandi.
Uppskriftin er frá www.cafesigrun.com