Orkugrautur
Öðru nafni "Hráfæðishafragrautur".
Þessi er virkilega hollur og góður og stútfullur af orku!
"slatti" af tröllahöfrum
eitt epli (rífa niður eða brytja)
smá sjávarsalt
smá agave (ekki nauðsynlegt)
kanill að smekk
Það er virkilega gott að bæta alls kyns góðmeti útí, t.d.:
rúsínum
hnetum
niðurskornum döðlum
banana
fræjum
hverju sem er sem þér finnst gott
Settu allt í stóra skál og blandaðu aðeins saman.
Settu það mikla mjólk (hrísmjólk, möndlumjólk eða jafnvel venjulega mjólk) yfir grautinn, að það flæði aðeins yfir þurrefnin. Hafrarnir "eldast" í því.
Geymist yfir nótt í kæli og borðist kaldur að morgni.
(Stundum er gott að bæta við smá mjólk að morgni og þá má líka bragðbæta hann ef þarf.)