Mangókjötbollur
500 g nautahakk
1 egg
2 msk mangó chutney
1/2 dl létt sýrður rjómi
1 tsk salt
Öllu blandað saman og rúllað upp í cirka 20 litlar bollur. Sett í bökunarpappírsklædda ofnskúffu og eldað í 250 gráðu heitum ofni í 10-15 mínútur.
Sósan:
2 dl létt sýrður rjómi eða tyrknesk jógúrt
smá gróft salt
2 msk (eða meira eftir smekk) mangó chutney
Borið fram með couscous og rósakáli.
MMMmm.........
Anna Lísa Stefánsdóttir
Athugasemd frá Transform:
Þegar keyptur er matur í krukkum eða dósum er best að reyna ætíð að velja tegundir sem innihelda sem minnst af aukaefnum!
Í þessa uppskrift er einnig mjög gott að nota t.d. 25% svartar baunir á móti 75% nautahakki.