Kínóasalat með mangó og rækjum

2 dl kínóa
4 dl vatn
500 gr rækjur
1 mangó
1 avókadó
1 rauð papríka
2 sallatslaukar (eða smá vorlaukur
1/2 gúrka
handfylli af ferskum kóríander
2 msk limesafi
salt og pipar

Setja upp vatnið að suðu, kínóa bætt við og látið sjóða í cirka 15 mínútur. Rækjunum bætt við þegar kínóað er fullsoðið svo volgni örlítið.
Saxa niður allt grænmetið eftir smekk (sumt í bita, annað í báta o.sfrv.). Öllu blandað við kínóarækjurnar og limesafinn ásamt salti, pipar og kóríander bætt við í lokin.

(úr LagaLätt 05/2005)

Anna Lísa Stefánsdóttir