Kínóasalat

Kínóasalat
Fyrir fjóra

Innihald:                                    

  • 1 1/2 bolli af soðnu kínóa.                 
  • 3 bollar vatn.                 
  • 1/4 bolli safi af límónu.                                   
  • 1/2 bolli olífuolía.                                   
  • 1 bolli niðurkorin steinselja.                 
  • 1/2 bolli niðurskorinn blaðlaukur.
  • 1/2 bolli niðurskorinn tómatur.
  • Salt og pipar að vild.

Aðferð:

  • Skolaðu kínóa vel í sigti þar til það er orðið hreint.
  • Settu kínóa í djúpa pönnu. Hafðu lágan hita. Hrærðu í með trésleif þar til allt vatn er gufað upp og þú finnur ristaða lykt af korninu.
  • Bættu vatninu og dálitlu af salti út á pönnun. Hrærðu í til þess að losa kínóa sem gæti verið fast á pönnunni.
  • Settu lok á pönnuna og bíddu þar til suðan kemur upp.
  • Lækkaðu þá hitann og láttu malla í ca 10-15 mínútur, eða þar til allt vatn er gufað upp. Láttu kínóað standa í 5 mínútur og hrærðu svo í með gaffli.
  • Settu allt hráefnið, ásamt kínóa, í skál og berðu fram.