Hrökkbrauð

Þetta hrökkbrauð er mjög gott eitt og sér eða með hvers konar áleggi :)

1 dl haframjöl
1 dl sólblómafræ
1 dl graskersfræ
1 dl sesamfræ
1 dl hörfræ
1 dl ólífuolía
2 dl vatn
3 1/2 dl hveiti (blanda hveiti og spelt)
1 tsk vínsteinslyftiduft
1/2 til 1 tsk salt

Hræra öllu saman með sleif.
Skelli þessu á bökunarpappír og flet út með höndunum með bökunarpappír ofan á deiginu, sker niður í þá stærð sem ég kýs með pizzahjóli og set inn í ofn við 175c í ca. 20-25 mínútur.

Það er mjög gott að strá smá osti yfir áður en bakað er (Bara smekksatriði)

Anna Lísa Stefánsdóttir