Hnetukökur

80-100gr smjör eða kókosfeiti (líka gott að skipta til helminga kókosfeiti og eplamauki)

6 msk agave sýróp

4 msk hrásykur (má sleppa)

1 egg (má sleppa)

1½-2b glúteinlaust mjöl

½ tsk vínsteinslyftiduft

Ca ½ tsk salt

Brytjaðar hnetur að eigin vali

¼ tsk vanilla

Fyrir þá sem vilja er líka gott að setja 70% lífrænt súkkulaði og/eða kókosmjöl.

Hrært í vél (á að vera svolítið þykkt) sett með teskeið á plötu

Bakað við 200° í 10-20 mí.

 

Uppskrift frá Ingu Lóu Birgisdóttur