Hlynsýróps- og sesamsmjörssmákökur
Innihald (þessi er ekki fyrir nammigrísi)
- 150 gr haframjöl
- 125 ml hreint hlynsíróp (enska: maple syrup)
- 125 ml ljóst eða dökkt sesamsmjör (tahini)
- 45 gr sólblómafræ
- 50 gr rúsínur
Aðferð
- Malið helminginn af haframjölinu (75 gr) í matvinnsluvél eða blandara. Setjið í stóra skál.
- Hrærið saman hlynsírópi og sesamsmjöri í skál og hrærið þangað til það er orðið vel blandað saman.Gott er að nota hrærivél, matvinnsluvél eða blandara til að hræra en þarf ekki.
- Hellið sesamsmjörsblöndunni út í stóru skálina ásamt afganginum af haframjölinu. Hrærið vel.
- Bætið sólblómafræjum og rúsínum út í skálina og hrærið vel.
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu og setjið 1 kúfaða teskeið af deigi fyrir hverja smáköku, á bökunarplötuna. Hafið svolítið bil á milli smákakanna.
- Bakið við 180°C í um 15-18 mínútur eða þangað til kökurnar eru orðnar gullnar.
- Kælið.
- Hægt er að nota saxaðar pecanhnetur í staðinn fyrir sólblómafræin.
Gott að hafa í huga
- Gott er að bæta við 1 tsk af kanil í deigið til að fá meira jólabragð.
- Ef ykkur finnst kökurnar of sætar má setja 50 gr af möluðum möndlum út í deigið.
- Nota má saxaðar döðlur í staðinn fyrir rúsínur.
- Nota má fínmaukað hnetusmjör í staðinn fyrir sesamsmjör.
- Sesamsmjör (tahini) fæst í heilsubúðum.
Uppskrift af vefnum www.cafesigrun.com