Hlynsýróps ávaxtasalat

 

Undirbúningstími: 10 mínútur
Eldunartími: 20 mínútur
Fyrir 4
 
Innihald:
2-3 epli
2-3 ferskjur eða perur
2 msk. hlynsýróp
½ bolli af rúsínum
safi úr einni sítrónu
1 tsk. kanill
1 bolli valhnetur eða aðrar hnetur sem þér finnast góðar
½ tsk. ferskur smátt brytjaður engifer
2 msk. hunang
 
Aðferð:
1.  Þvoðu, afhýddu og brytjaðu niður ávextina (í kubba eða sneiðar).
2.  Settu á stóra pönnu með 1/3 bolla af vatni. Settu líka rúsínurnar og hlynsýrópið út í.
3.  Eldaðu á meðalhita í 10 mínútur og hrærðu aðeins.
4.  Settu sítrónusafa og kanil út í. Eldaðu í 10 mínútur til viðbótar, eða þar til ávextirnir eru orðnir mjúkir.
5.  Ristaðu hneturnar í 5 mínútur á pönnu á meðan ávextirnir eldast. Hrærðu stöðugt í þeim til þess að þær brenni ekki.
6.  Bættu hunanginu og engiferinu varlega saman við hneturnar en gættu þess að hræra stöðugt þar sem hunangið brennur auðveldlega.
7.  Settu ávextina í fallega skál og bættu hnetunum ofaná.
8.  Njóttu!