Heslihnetusmákökur með sultutoppi
Gerir 24 smákökur
Innihald
- 120 gr spelti
- 50 gr rapadura hrásykur (eða annar hrásykur)
- 50 gr heslihnetur (eða heslihnetumjöl), þurrristaðar og afhýddar
- 5 mtsk kókosolía
- 3-4 mtsk sulta (t.d. hindberjasulta), án viðbætts sykurs
- 1 mtsk agavesíróp
- Nokkrar matskeiðar vatn (ef þarf)
Aðferð
- Byrjið á því að rista hneturnar á mjög heitri pönnu (án olíu) í um 10 mínútur eða þangað til hýðið fer að losna af. Nuddið hýðinu af og kælið hneturnar.
- Setjið hneturnar í blandara og malið þær í 20 sekúndur eða þangað til mjög fínt malaðar (eins og gróft mjöl).
- Í stóra skál skuluð þið blanda saman spelti, heslihnetumjöli og rapadura hrásykri.
- Í annarri skál skuluð þið blanda saman kókosolíu og agavesírópi. Hellið út í stóru skálina og hrærið mjög vel.
- Ef deigið er þurrt/molnar of mikið bætið þá nokkrum matskeiðum af vatni út í deigið þangað til hægt er að hnoða það vel saman. Það verður svolítið sprungið en bætið þá aðeins við af vatni til að mýkja deigið.
- Mótið deigið í kúlur (um 1 tsk af deigi fyrir hverja kúlu).
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu. Setjið kúlurnar á bökunarpappírinn og þrýstið með flötum lófa ofan á hverja svo úr verði flöt smákaka.
- Þrýstið með þumalfingri (eða vísifingri) varlega ofan í hverja köku svo hola myndist. Athugið að þær munu springa svolítið út frá holunni en svo lengi sem þær brotna ekki í tvennt þá er það allt í lagi.
- Bakið við 180°C í 12-15 mínútur.
- Takið kökurnar úr ofninum og kælið í 5 mínútur. Ef holurnar hverfa (gerist stundum) skuluð þið ýta aftur ofan í þær núna (á meðan þær eru mjúkar). Ýtið frekar fast svo að holan haldi sér.
- Þegar kökurnar eru orðnar kaldar skuluð þið setja um 1/2 tsk af sultu ofan á hverja köku, ofan í holuna.
Gott að hafa í huga
- Nota má möndlur í staðinn fyrir heslihnetur og er þá gott að setja 0,5 tsk af möndludropum í deigið.
- Nota má alls kyns sultur (nema mér finnst rabarbarasulta ekki passa sérlega vel við).
- Rapadura hrásykur fæst í heilsubúðum en nota má annan hrásykur.
- Ef kókosolían er hörð má stinga krukkunni í heitt vatn í nokkrar mínútur þar til hún verður fljótandi.
- Nota má hreint hlynsíróp (enska: maple syrup) í staðinn fyrir agevesíróp.
Uppskriftin er frá www.cafesigrun.com