Guðrúnarkjúlli
Kjúklingur, annaðhvort lundir bringa sem skorin er í "lundir". Magn fer eftir fjölda matargesta
Rautt pestó (eftir smekk)
Fetaostur (eftir smekk)
Döðlur (eftir smekk)
Kjúklingnum komið fyrir í eldföstu móti, pestóinu makað á kjúklinginn.
Fetaosti dreift yfir.
Döðlur skornar í tvennt og dreift yfir.
Eldað í ofni við 180°c í ca. 30 mín
Gott meðlæti eru t.d. sætar kartöflur skornar í teninga og steiktar á pönnu uppúr kókosolíu, gufusoðið/soðið brokkolí
Hrísgrjón eða kínóa.
Guðrún Arna Sigurðardóttir
Athugasemd Transform - einnig er gott að ofnsteikja allt grænmeti :)