Grunnuppskrift af hráfæðisúkkulaði

Þetta súkkulaði er algjört æði. Það besta við það er að þú ættir í raun að fá þér smakk reglulega þar sem það er svo gott fyrir þig  ;o)

 
Hráfæðisúkkulaði

Grunnur:

·       1 bolli gæðakakó. (Ég mæli eindregið með því að varan sé “Fair Trade”).

·       1 bolli kókosolía. (Setjið kókosolíukrukkuna í heitt vatn svo olían verði fljótandi).

·       ½ bolli agave sýróp.

·       ¼ tsk. grænt duft. (Því má sleppa)*


Það er líka mjög gott að setja 1 msk. lífrænt hlynsýróp og ½ tsk. lífrænt vanilluduft út í grunninn – en ekki nauðsynlegt.
*Grænt duft, t.d. Spirulina, hægir á sykrinum út í blóðið og inniheldur líka mikið af andoxunarefnum. Merkilegt nokk! Það gerir súkkulaðið einnig mýkra og áferðafallegra.
 

Setjið öll innihaldsefnin í skál og hrærið þeim saman þar til blandan verður kekklaus.

Skemmtilegast er að láta hugmyndarflugið ráða og bæta út í hnetum, rúsínum, gojiberjum, þurrkuðum ávöxtum, piparmyntu eða eitthvað annað sem þér finnst gott.

 

Aðferð:

  • Blandan er sett í konfektform en einnig er einfalt að hella henni beint á bökunarpappír. Eftir skamma stund í frysti, er auðvelt að skera súkkulaðið í passlega stóra bita.
  • Það er virkilega gómsætt að dýfa eplasneiðum eða öðrum ávöxtum í hráfæðisúkkulaðið.
  • Prófaðu að bæta smá cayanne pipar út í súkkulaðið eða rifnum appelsínuberki til þess að fá öðruvísi og krassandi bragð. 
  • Súkkulaðið hentar einnig einstaklega vel sem íssósa. Þetta súkkulaði má einnig setja ofan á venjulega skúffuköku - og gera hana þar með helmingi hollari!

 

 

ATH. Hráfæðisúkkulaði verður aldrei grjóthart og bráðnar auðveldlega við stofuhita. Því er best að geyma það í kæli eða frysti.