Góðloka
Þessi gómsæta uppskrift er tilvalin fyrir þá sem eru með glúteinofnæmi/óþol/viðkvæmni eða þá sem vilja einfaldlega minnka brauðneysluna!
- 6 stór kálblöð (t.d. iceberg salat sem tekið er varlega í sundur. Best er að skera neðsta (harða) hlutann af, og "afvefja" svo blöðin, eitt af öðru.)
- 250 gr ferskt spínat
- 1 vel þroskað avacado
- 4 msk sesamfræ, graskersfræ eða hnetur, þurrristuð á pönnu
- 1/2 paprika eða gúrka
- 2-4 gulrætur, skornar í strimla
- 1/2 mangó, skorið í strimla
Aðferð:
- Skerið allt grænmeti í fínar sneiðar.
- Skolið spínatið. (Nota má hvaða blaðgræna grænmeti sem er til í ísskápnum.)
- Þurristið fræin eða hneturnar.
- Það má auðvitað nota alls konar grænmeti í staðinn fyrir það sem er talið hérna upp.
- Settu slatta af öllum innihaldsefnunum ofan á eitt iceberglauf og berðu fram. Gott er að vefja því aðeins saman svo innihaldsefnin hellist ekki út. Það má einnig stinga tannstöngli til þess að styðja við.
- Það er gott að setja smá slettu af mildri salsasósu inn í vefjuna. Það er einnig gott að setja 1/2 tsk af tamarisósu inn í vefjurnar.
- Þetta er mjög sniðugt sem nesti í skóla eða vinnu.
Þessa uppskrift getur þú leikið þér með að vild. Prófaðu bara að nota salatblað (eitthvað stórt sem gott er að vefja) og gerðu allar gömlu uppáhalds (hollu!) samlokurnar þínar!