Glúteinlausar vatnsdeigsbollur

Þó ég segi það sjálf, þá gætu þessar varla verið betri! Ég var búin að leita lengi og víða að uppskriftum af glúteinlausum vatnsdeigsbollum. Sama hvað ég prófaði þá voru þær alls ekkert líkar þessum hefðbundnu (og trúið mér - ég er snilli í þeim!) og alltaf mjög mikið "glúteinlaust bragð" sem er alls ekki gott. Þær voru þungar og þéttar en mér dugir ekkert annað en "the real thing" eða í hið minnsta eins nærri því og ég kemst :) Þess vegna ákvað ég að hætta að prófa annarra manna uppskriftir og búa til mína eigin. Útkoman er sú langbesta sem ég hef prófað!

Nú er um að gera að smakka og dæma fyrir ykkur sjálf :)

 

Glúteinlausar vatnsdeigsbollur
 

3dl vatn

150gr smjör

25gr maísmjöl

25gr rísmjöl

100gr kartöflumjöl

örlítið sjávarsalt

1 full tsk vínsteinslyftiduft

3-4 egg ("hamingjusöm egg!")

  • Bræða saman vatn og smjör í potti. Taka pottinn af hellunni. Blanda þurrefnunum saman. Sigta - já sigta - eina msk í einu af glúteinlausu hveitiblöndunni og hræra vel í á milli.
  • Kæla.
  • Setja eitt egg í einu og hræra mjög vel í á milli t.d. með trésleif. Það er mikilvægt að setja einungis eitt egg í einu. Deigið á að vera frekar stíft.

Setja tæpa msk á smjörpappír (gott að nota aðra msk til þess að skafa úr hinni og búa til "kúlur". Deigið gerir u.þ.b. 15 bollur.

Bakist í ca 20-30 mín á 180gráðum (fer eftir gæðum bökunarofnsins :) eða þar til bollurnar eru fallega gulbrúnar.

ATH. Best er að reyna að skella þeim sem fyrst í ofninn, þar sem deigið "linast" ef það bíður of lengi. Bollurnar eru bestar samdægurs.

  • Í mínar bollur set ég kasjúhneturjóma (namm! og ótrúlega seðjandi) og hráfæðisúkkulaði.

 

Borðist með bestu lyst ca. einu sinni á ári :o)