Glúteinlausar piparkökur

Gerir 20-25 stykki

Innihald

  • 1 tsk appelsínubörkur, rifinn fínt á rifjárni
  • 160 gr hrísmjöl (enska: rice flour)
  • 1 tsk vínsteinslyftiduft
  • 1 tsk kanill
  • 0,5 tsk negull (enska: cloves)
  • 4 mtsk kókosolía
  • 70 gr rapadura hrásykur (eða annar hrásykur)
  • 50-100 ml sojamjólk (eða önnur mjólk)

Aðferð

  1. Rífið appelsínubörkinn fínt á rifjárni. Gætið þess að rífa aðeins appelsínugula hlutann, ekki þann hvíta.
  2. Í stóra skál skuluð þið sigta saman; hrísmjöl, lyftiduft, kanil og negul. Bætið appelsínuberkinum út í og hrærið vel.
  3. Í aðra skál skuluð þið hræra saman kókosolíu, 50 ml af sojamjólk og rapadura hrásykri þannig að úr verð mjúk blanda. Hellið út í stóru skálina og hrærið vel. Ef deigið er mjög þurrt bætið þá meira af sojamjólk út í.
  4. Hnoðið deigið í stóra kúlu. Skiptið deiginu í 4 hluta og mótið pylsur í höndunum. Pakkið pylsunum inn í plastfilmu og setjið í ísskápinn. Geymið í klukkustund eða yfir nótt.
  5. Setjið bökunarpappír á bökunarplötu. Skerið pylsurnar í 1-1,5 sm bita og raðið á bökunarplötuna.
  6. Mótið bitana aðeins ef þarf (þannig að þeir verði kringlóttari).
  7. Bakið við 180°C í um 15 mínútur.

Gott að hafa í huga

  • Kökurnar ættu að vera stökkar að utan og mýkri að innan.
  • Nota má undanrennu, hrísmjólk, haframjólk eða möndlumjólk í staðinn fyrir sojamjólk.
  • Ef kókosolían er hörð má stinga krukkunni í heitt vatn í nokkrar mínútur þar til hún verður fljótandi.
  • Athugið að smákökurnar eru bestar nýbakaðar. Frystið þær smákökur sem þið borðið ekki samdægurs og hitið svo upp síðar. Þær verða eins og nýbakaðar.

 

Uppskrift af vef www.cafesigrun.com