Geggjuð gulrótarkaka

Þessi er algjört æði. Það er svo ótrúlega gott að vera laus við allt gervidótið. Maður á að bíta í venjulegar gulrætur þegar maður borðar gulrótarköku! Annað er bara eins og að borða bananabrauð án banana ;)

Undirbúningstími: um 20 – 40 mínútur (eftir því hversu oft þú gerir kökuna ;)

Eldunartími: 0 (Hráfæðiskökur þarf ekki að elda!)

Botninn:
3 bollar raspaðar gulrætur
2 bollar valhnetur (pecan hnetur) hakkaðar í matvinnsluvél.

1 bolli kókosmjöl

¼ bolli saxaðar rúsínur

1 tsk. múskat

½ tsk. sjávarsalt

½ tsk. fínt rifinn appelsínubörkur

Döðlulím (1 bolli mjúkar döðlur og ½ bolli hreinn appelsínusafi (best að kreista ca. tvær appelsínur). Þetta er sett saman í matvinnsluvél þar til þetta er orðið mjúkt.)

1 ½ tsk. blandað krydd (kanill, kóríanderfræ, kúmen, engiferduft) (prófaðu þig bara áfram, það er ekkert rétt eða rangt)

Settu öll innihaldsefnin í stóra skál og blandaðu vel saman með sleif eða höndunum. Formaðu litlar kökur eða eina stóra. Þessi uppskrift er vanalega sett í þurrkofn í 8-12 tíma. Ég skelli henni hins vegar bara í frystinn í 1klst. og borða hana hálf frosna.

Kremið:
1 ½ bolli kasjúhnetur
½ bolli vatn

2 fullar msk. agave sýróp
3 msk. kókosolía
Smá vanilludropar eða vanilluduft

Smá sjávarsalt

Blandaðu öllu saman í matvinnsluvél þar til það er orðið mjög mjúkt. Kremið þykknar þegar það kólnar. Flott að setja smá kanil ofan á kökuna sem skraut.

 

Uppskriftin er fengin frá hráfæðiskokknum Russel James.