Frosin bananasæla

Skerðu banana í 2-3 jafnstóra bita. Það er mjög gott að stinga íspinnastöng í hann, kokteilpinna. Húðaðu bananann með annað hvort hráfæðisúkkulaði eða bræddu 70% súkkulaði. Stráðu kókosmjöli yfir, muldum hnetum eða hverju sem þér dettur í hug. Frystu í minnst 30 mínútur.  

Voila - geggjað gott og einfalt!

  • Það er mjög auðvelt að útfæra bananasælu yfir á fleiri ávexti, t.d. nota heil jarðaber og velta uppúr súkkulaði og hnetukurli eða nota niðurskorinn ananas. Þessa ávexti þarf ekki að frysta, en þá þarf að geyma í ísskáp.
  • Það má velta banananum uppúr hverju sem er – láttu hugmyndaflugið ráða!

    Nammidagur hjá krökkunum (eða þér)? Myldu t.d. smarties eða M&M og notaðu það sem kurl utan á bananann. Þannig ertu að borða ca 10 stk í staðinn fyrir 100!!