Fjölhæft hrísgrjónapilaf
Fjölhæft hrísgrjónapilaf - Fyrir 8
Pilaf merkir að grjónin eru snöggsteikt til þess að fá léttristað bragð.
Innihald:
- 2 bollar hýðishrísgrjón.
- 2 tsk olía eða smjör.
- 4 bollar vatn eða soð.
- ½ bolli hnetur eða fræ.
- 2 bollar ferskt saxað grænmeti.
- Ferskar kryddjurtir og annað krydd að smekk.
Aðferð:
Hitaðu olíuna/smjörið á stórri pönnu/potti með loki á meðalhita. Bættu hrísgrjónunum út í og hrærðu í ca 5 mínútur eða þar til grjónin hafa ristast örlítið. Notaðu trésleif til þess að brjóta ekki grjónin. Bættu vatninu/soðinu út í, settu lokið á og eldaðu í 45 mínútur. Bættu grænmetinu, hnetunum/fræjunum útí og eldaðu í 5 mínútur til viðbótar.