Engiferdrykkur
Þessi er einstaklega hollur og frábær til að eiga í ísskápnum. Hann getur enst þér í margar vikur.
Þessi drykkur styrkir m.a. ónæmiskerfið, eykur brennslu og er vatnslosandi að auki!
Engiferdrykkur
Undirbúningstími: 7 mínútur
Eldunartími: 24 tímar
Innihald:
200-400gr. fersk engiferrót
2 lítrar af vatni
Safi úr 2 límónum
hlynsýróp eða agave sýróp
Aðferð:
Afhýddu engiferið, rífðu það niður eða skerðu í litla bita og settu það saman við vatnið í potti.
Láttu suðuna koma upp og leyfðu vatninu að malla í 4 mínútur. Slökktu svo undir hellunni, settu lokið á og leyfðu vatninu að standa í sólarhring.
Sigtaðu vatnið til að skilja engifer agnirnar frá.
Settu límónusafann útí og bragðbættu með sýrópinu.
Hrærðu vel saman.
Berðu fram heitt eða kalt.
Ath. Þessi drykkur er mjög bragðsterkur. Það sem ég geri oftast sjálf, er að setja soðvatnið í 2lítra flösku og geyma inni í ísskáp og blanda svo til helminga við þann drykk sem mig langar í!