Engiferdrykkur
Þessi er einstaklega hollur og vatnslosandi að auki!
Engiferdrykkur
Undirbúningstími: 7 mínútur
Eldunartími: 24 tímar
Fyrir: 6-8 manns
Innihald:
Ca. 400gr. fersk engiferrót
2 lítrar af vatni
Safi úr 2 límónum
hlynsýróp eða agave sýróp
Aðferð:
Afhýddu engiferið, rífðu það niður og settu það saman við vatnið í potti.
Láttu suðuna koma upp og leyfðu vatninu að malla í 4 mínútur. Slökktu svo undir hellunni, settu lokið á og leyfðu vatninu að standa í sólarhring.
Sigtaðu vatnið til að skilja engifer agnirnar frá.
Settu límónusafann útí og bragðbættu með sýrópinu.
Hrærðu vel saman.
Berðu fram kalt.