Bok choy og eplahrásalat

Undirbúningstími: 7 mínútur
Fyrir fjóra
 
Innihald:
6 stilkar af bok choy (ca. hálfur haus), skorið í þunna bita. (Hægt er að nota hvaða kál sem er, best er að prófa sig áfram og finna hvað þér líkar best.)
½ lítill rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar
1 grænt eða gult epli, skorið í bíta
½ bolli sólblómafræ

Sósan
:
1 teskeið saxað (eða þurrkað) kóríander
1 teskeið dijon sinnep
2 matskeiðar eplaedik (eða sítrónusafi)
¼ bolli ólífuolía
2 teskeiðar hunang eða sýróp
salt og pipar að smekk
 
Aðferð:
1. Settu öll innihaldsefni sósunnar í skál og hrærðu vel saman.
2. Skerðu niður innihaldefnin sem fara í salatið, en geymdu eplin þar til síðast og blandaðu svo saman í skál.
3. Settu helminginn af sósunni út á salatið. Bættu meiri sósu við af þú vilt.
4. Borðist strax. Ef þú vilt kæla salatið í klukkutíma í ísskáp, er best að bæta eplunum ekki saman við fyrr en rétt áður en salatið er lagt á borð.