Basilíkufiskur

Basilíkufiskur

  • 1box fersk basilíka
  • 1box kirsuberjatómatar
  • Salt og svartur pipar eftir smekk
  • Rifinn ostur
  • Ólífuolía
  • Nýr eða frosinn þorskur


Setjið slatta af góðri olíu í botn á eldföstu móti.

Saltið og piprið fiskinn og leggið í mótið.

Hellið smá olíu yfir fiskinn.

Rífið basilíkuna yfir.

Skerið tómatana í tvennt og raðið ofaná.

Að síðustu er ostinum dreift yfir.


Sett inn í 170° heitan ofn þar til bakað.


Dásamlega gott, verði ykkur að góðu.

Kveðja Elín Rósa Ragnarsdóttir