Bananagaldur

Þessi uppskrift er tilvalin fyrir þá sem eru með mjólkurofnæmi, -óþol, eða -viðkvæmni eða þá sem vilja einfaldlega borða ótrúlega góðan og hollan ís!!!

Og jú, ég veit að þessi uppskrift er mjög lík frosna banananum sem er einnig hér á síðunni, en ég hef bara svo gaman af því að sýna fram á hversu margt er hægt að gera með smá breytingum og hugmyndaflugi :) 


Bananagaldur (Fyrir 4)

(takk tengdapabbi fyrir frábæra nafngift!)

  • 4 vel þroskaðir bananar. Skerið í litla bita og setjið í poka. Dreifið vel úr bitunum og setjið í frysti. (Gott að gera þetta kvöldið áður.)
  • Þegar bananarnir eru orðnir frosnir í gegn skal setja þá í matvinnsluvél, eða kröftugan blandara.
  • Blandið saman þar til afraksturinn er kekklaus, mjúkur (en stífur) og frekar ljós á litinn. Voila! Án alls spaugs, þá er ísinn tilbúinn!! 

Best er að byrja á sósunni, (þ.e. hráfæðisúkkulaðinu) þar sem ísinn bráðnar ansi hratt, sérstaklega ef hann er of lengi í matvinnsluvélinni.