Banana og carobbitakökur

Gerir um 30 stykki

Innihald

  • 100 gr dökkt carob (lítur út eins og súkkulaði), saxað frekar smátt
  • 320 ml haframjöl, helmingurinn malaður í matvinnsluvél
  • 160 ml hreint hlynsíróp (enska: maple syrup)
  • 160 ml tahini (sesamsmjör), dökkt
  • 1 stór banani, vel þroskaður

Aðferð

  1. Saxið carobið frekar smátt (hvern bita í um 4 hluta).
  2. Setjið helminginn af haframjölinu í matvinnsluvél og malið í um 20 sekúndur eða þangað til haframjölið er fínmalað.
  3. Afhýðið bananann og bætið út í matvinnsluvélina ásamt hlynsírópi og tahini. Maukið vel.
  4. Blandið saman banana, hlynsírópi og tahini í matvinnsluvél og blandið í um 10 sekúndur. Setjið í stóra skál.
  5. Blandið afganginum af haframjölinu út í skálina ásamt carobinu.
  6. Setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
  7. Setjið kúfaða matskeið af deigi fyrir hverja smáköku, á plötuna. Ýtið varlega ofan á hverja köku með gaffli (gott að bleyta hann á milli).
  8. Bakið við 180°C í um 15-20 mínútur.
  9. Takið úr ofninum (ekki láta freistast....því maður brennir sig..skrifa af mikilli reynslu) og látið kólna.

Gott að hafa í huga

  • Hægt er að nota dökkt, lífrænt framleitt súkkulaði með hrásykri í staðinn fyrir carob.
  • Nota má döðlur í stað carobs eða súkkulaðis.
  • Athugið að carob og súkkulaði getur innihaldið mjólk, lesið ávallt innihaldslýsingu ef þið eruð með óþol/ofnæmi. Ég nota mjólkurlaust carob í þessa uppskrift.
  • Carob og tahini fæst í heilsubúðum og heilsuhillum stærri matvöruverslana.
  • Athugið að smákökurnar eru bestar nýbakaðar. Frystið þær smákökur sem þið borðið ekki samdægurs og hitið svo upp síðar. Þær verða eins og nýbakaðar.

 

Uppskriftin er af vefnum www.cafesigrun.com