Ávaxta- og hnetuhristingur

Undirbúningstími: 5 mínútur
Fyrir tvo
 
Innihald:
1 banani
1 bolli soja/hrís- eða möndlumjólk (einnig er hægt að nota venjulega mjólk)
1 bolli ber (hvaða ber sem þú vilt)
1 bolli brytjuð melóna
1/2 bolli möndlur (best er að leyfa þeim að liggja í bleyti í smá tíma áður en þær eru notaðar, t.d. 1klst.)
2-4 ísmola (þú þarft ekki ísmola ef berin eru frosin)
 
Aðferð:
Settu allt í blandara og berðu fram.
Ath: Þú getur auðveldlega bætt meiru saman við, t.d. hveitikími, kókosolíu, hörfræjum, spírúlínu eða gæða próteindufti.