Asískt vætukarsasalat

Undirbúningstími: 7 mínútur
Fyrir fjóra
 
Innihald:
1 búnt vætukarsi. (Hægt er að nota hvaða kál sem er, best er að prófa sig áfram og finna hvað þér líkar best.)
1 bolli af rifnum gulrótum
1 bolli af bökuðu tófú
2-3 msk. edik
1 msk sesamolía
 
Aðferð:
1. Rífðu vætukarsann niður í bita. (Þú ræður hversu stóra eða smáa).
2. Blandaðu gulrótunum saman við í salatskál.
3. Settu smá sesamolíu og ediki yfir salatið og blandaðu vel saman við.
4. Skerðu tófúfið í munnbitastærð og settu efst á salatið.