Vorhreingerning

Þrátt fyrir að komið sé fram á mitt sumar á þessi grein ennþá vel við! Ef þú hefur ekki nú þegar "hreinsað til", gerðu það þá núna :)

Fólk er hrifið af “dóti”. Við söfnum sífellt meira dóti á hverju ári. Við pössum uppá og geymum dót sem við vitum ekki lengur hvað við viljum gera við. Sumt geymum við vegna minninganna – liðnir  dagar, ömmur, afar, gömul ást eða barnæskan. Hver sem ástæðan er þá hvarflar oft ekki að okkur að láta þetta dót frá okkur. Til er málsháttur sem hljómar svo: “Þú verður að að leyfa því gamla að víkja til þess að hafa pláss fyrir það nýja.” Ef þér finnst þú vera stöðnuð/staðnaður á einhverjum sviðum lífsins – prófaðu þá vorhreingerninguna. Hentu út þessu gamla dóti, kveddu fortíðina og bjóddu velkomna nýja strauma, orku, heilsu og hamingju í framtíðina þína. Prófaðu þessar þrjár hugmyndir: 

  1. Góð andleg og líkamleg heilsa fæst meðal annars með því að taka til á tveimur “heimilum”: heimilinu sem við búum í og líkamanum sem við lifum í. Rétt eins og við söfnum “drasli” eins og fötum sem við notum ekki lengur, tímaritum, ryðguðum hjólpörtum, verkfærum og hinu og þessu, þá safna líkamar okkar líka drasli – matarafgöngum og eiturefnum sem nauðsynlegt er að hreinsa út.
  2. Líkamleg vorhreingerning fæst með því að hvíla líkamann á flóknum og hitaeiningaríkum mat og fasta eða hreinsa hann í stuttan tíma. Hreinsun fæst með því að borða mikið af einföldum ávöxtum og grænmeti, drekka mikið af vatni og borða smáræði af heilkornum. Þú fastar með því að takmarka flestan mat en drekka mikið af vatni, ávaxta- eða grænmetissafa, te og súpum. Þegar líkaminn eyðir ekki miklum tíma í meltingu þá verður meiri orka afgangs fyrir líkama og sál. Hreinsun getur styrkt einbeitinguna og skýrt hugsun. Hreinsun hjálpar einnig til við að styrkja og bæta ónæmiskerfið sem, og meltingarkerfið. Sendu mér línu ef þú vilt fá nokkrar góðar ábendingar varðandi hreinsun og hvernig er best að standa að henni.
  3. Það má ekki gleyma einu mikilvægu atriði þegar við gerum vorhreingerninguna – að laga til í hjartanu. Hentu burt neikvæðum hugsunum og tilfinningum sem gera þér hvort eð er ekkert gagn. Hreint og opið hjarta gerir þér kleift að móttaka allt það góða sem hver dagur hefur að færa þér. Ef hjartað þitt og hugur eru full af óþarfa drasli þá er ekkert pláss eftir fyrir gjafir og óvæntar uppákomur lífsins.