Nýtt upphaf

Allir þekkja áramótaheit. Við höfum flest öll strengt þau einu sinni eða tvisvar (eða jafnvel enn oftar). Við sverjum að nú munum við léttast, æfa meira eða eyða meiri tíma með fjölskyldunni. Fyrirætlanir okkar eru frábærar í upphafi árs en alltof oft föllum við í sama gamla farið.

Af hverju í ósköpunum getur verið svona erfitt að halda sig við efnið?
Hér koma nokkrar aðferðir sem geta aðstoðað þig við að standa við markmiðin þín:

  • Skrifaðu niður markmið þín og hafðu þau á sýnilegum stað. Þú getur t.d. límt þau á baðherbergisspegilinn eða á svefnherbergishurðina þína.
  • Leitaðu að rót vandans. Áttu í samskiptaörðugleikum við ástvin sem hafa þau áhrif á þig að þú vilt helst flytja inn í ísskápinn þinn? Ertu óánægð(ur) í vinnunni og of þreytt(ur) til þess að fara í ræktina að henni lokinni? Ef þú skoðar ekki rót vandans muntu eiga mun erfiðara með að ná markmiðum þínum og viðhalda breyttum venjum.
  • Sjáðu fyrir þér líf þitt eftir að markmiðum þínum er náð. Til dæmis ef markmið þitt er að fara oftar í ræktina, skaltu sjá fyrir þér hvaða jákvæðu kosti það hefði í för með sér. Einblíndu á ávinninginn og láttu það verða þér hvatning til aðgerða.
  • Deildu markmiðum þínum með öðrum. Í langflestum tilvikum virkar það mjög hvetjandi að láta aðra vita af því hvað þú ætlar þér að gera. Það gerir þig ábyrgari fyrir eigin hegðun og það er aldrei að vita nema þú hafir líka góð áhrif á þína nánustu í leiðinni.
  • Verðlaunaðu þig fyrir alla litlu sigrana. Ef þú ætlar þér t.d. að léttast, skaltu gera eitthvað sérstakt fyrir þig þegar ákveðnum áföngum er náð. Þú gætir til dæmis verðlaunað þig með því að fara í nudd, heilun, bíó með félaga þínum - hvað sem gleður þig og nærir.

Stórar breytingar krefjast þess ekki að þú takir stór stökk. Það eru mun meiri líkur á því að breytingar verði varanlegar þegar þú breytir hlutunum smám saman heldur en þegar þú gerir stórvæglegar breytingar á stuttum tíma. Leyfðu þér að stíga eitt skref í einu, staðfast og ákveðið, í stað þess að stökkva af stað án áætlunar.

Þessi grein birtist í fréttabréfi Transform í janúar 2011.