Megrunarkúrar virka ekki!
Það er ekki hægt að kveikja á sjónvarpinu, keyra um götur bæjarins eða hitta vini og kunningja á þess að finna fyrir ákveðnum þrýstingi um útlitsstaðla: ÞYNGD. Megrunarkúrar eru iðnaður sem veltir mörgum milljörðum á hverju ári. Fyrirtæki eyða ótrúlegum fjárhæðum til þess að reyna að fá þig til að prófa nýjustu kúrana, (fitulaust, sleppa kolvetnum, sleppa hinu, sleppa þessu ofl. ofl.) með því loforði að NÚ sé lausnin komin – svona getir þú grennst um heilan helling með því að hafa lítið sem ekkert fyrir því. Því miður snúa þessar auglýsingar (og útlitsþrýstingur) ekki einungis að okkur – þau snúa einnig að börnunum okkar. Uppskeran er oft brenglað sjálfsmat sem getur haft hörmulegar afleiðingar.
Hin vestræna menning hampar fitubrennslutöflum, líkamsræktaræfingum fræga fólksins, tilbúnum verksmiðjumat og nýtísku megrunarkúrum. Þessir hlutir hafa hins vegar brugðist okkur all svakalega. Aldrei fyrr höfum við verið jafn þung og nú. Í Bandaríkjunum er helmingur íbúanna of þungur og einn af hverjum þremur þjáist af offitu! Þessar tölur ættu að hræða okkur öll því við nálgumst þetta óðfluga á Íslandi líka. Megrunarkúrar hrifsa frá manni alla almenna skynsemi ásamt því að gera veskið okkar mun léttara – án þess að gera teljandi úrbætur til langframa. Hvernig stendur á því?
- Megrunarkúrar virka ekki vegna þess að öll erum við ólík og þurfum ólíka hluti byggt meðal annars á kyni, aldri, lífstíl og hvaðan við komum: Hvernig í ósköpunum ætti einn megrunarkúr að vera sá eini rétti fyrir alla.
- Megrunarkúrar virka ekki vegna þess að þeir byggja á öfgum. Almenn eðlisfræði kennir okkur að ef við sveiflum pendúl í eina átt, mun hann sveiflast tilbaka. Ef við togum hann hátt öðru megin, mun hann sveiflast jafnhátt í hina áttina. Megrunarkúr gæti virkað í ákveðinn tíma en rannsóknir hafa margoft sýnt að flestir bæta öllu aftur á sig – og fimm kílóum að auki – þegar hætt er á kúrnum.
- Megrunarkúrar virka ekki því þeir setja fólki of strangar skorður. Fólk sem tekst ekki að halda sig við kúrinn er alls ekki veikburða eða hefur ekki nægilegan viljastyrk.
- Megrunarkúrum er ætlað að vera fylgt með miklum aga og takmörkunum í mataræði sem mannslíkamanum er óeðlilegt að fylgja til langframa.
- Flestir gera sér ekki næga grein fyrir því að andleg líðan getur haft bein áhrif á þyngdarstjórnun og telja að mataræðið sé eini sökudólgurinn.
Í þessum hraða upplýsingaheimi hafa margir misst sjónar á því hvað það er sem nærir okkur í raun og veru og heldur okkur í góðu jafnvægi. T.d. að hægja aðeins á sér, borða heimalagaða máltíð og að eyða tíma með fólki sem okkur þykir vænt um og sem þykir vænt um okkur á móti.
Það mun gera þér ótrúlega gott að vera meðvituð(aður) um hvað þú borðar og að gera smávægilegar breytingar á lífstílnum þínum. Þetta tvennt mun losa þig undan megrunarvítahringnum.
Líkama okkar er ætlað að finna jafnvægi. Þetta gerist einungis ef þú kemur þér úr megrunarkúrs-hugarheiminum og ferð að hlusta eftir því hvað það er sem þú þarfnast í raun og veru. Ímyndaðu þér alla orkuna sem þú eyðir í að prufa kúra og skyndilausnir. Ímyndaðu þér hversu miklu meira gagn það myndi gera þér að beina þessari orku inn á við svo þú getir hlustað á eigið hjarta og sannfæringu. Það er ekki til nein skyndilausn. Allt sem þú þarfnast er nú þegar innra með þér. Með íhugun og góðum stuðningi getur þú séð um alla þá næringu sem þú þarfnast, bæði á sál og líkama. Það gefur þér aukna orku, þyngdarstjórnun og bætta heilsu til langframa.