Matur fyrir sálina

       Lokaðu augunum sem snöggvast og láttu hugann reika aftur til bernsku. Hvað sérðu fyrir þér? Hvað fannst þér virkilega gott? Hugsaðu um mat sem lét þér líða vel. Kannski ertu að hugsa um soðinn fisk og kartöflur, ís í brauði eða pönnukökurnar hennar mömmu...

       Það er í góðu lagi að borða huggunarmat (comfort food), allaveganna annað slagið. Það sem meira er, þá getur slíkur matur haft virkilega góð áhrif á þig, jafnvel þó skynsemin segi þér að maturinn sé hvorki mjög næringarríkur né hollur.

 

Matur getur haft djúpstæð áhrif, áhrif sem ná langt út fyrir líkamlega heilsu okkar. Það sem við borðum getur dregið fram minningar sem eru okkur mjög kærar, eins og bernskuleiki, ferðalög, eldamennskuna hennar ömmu eða hvernig við upplifðum lífið í "gamla daga". Líkamar okkar muna eftir matnum sem við borðuðum, bæði í andlegum og frumulegum skilningi. Að borða þennan mat tengir okkur uppruna okkar, endurnærir og yngir okkur. Þessi áhrif geta haft miklu meiri áhrif á líkama okkar heldur en efnafræðileg samsetning matarins!

       Að gera sér grein fyrir því hvað mismunandi matartegundir merkja í hugum okkar er mjög mikilvægur hluti þess að eiga í góðum "samskiptum" við mat. (Ef samskipti þín við fæðuna eru góð, áttu ekki í neinum erfiðleikum með vigtina, borðar ekki öðruvísi þegar þér líður vel eða illa o.s.frv...).

       Í febrúarmánuði halda margir Valentínusardaginn hátíðlegan - dag vináttu og ástar. Rétt eins og við höldum upp á þennan dag sambanda er mikilvægt að við gerum okkur grein fyrir því að öll eigum við okkar sambönd við mat en það sorglega er að þetta samband gerir mörgum okkar meira slæmt en gott. Margir setja strangar hömlur á ákveðnar fæðutegundir í tilraun sinni að hafa áhrif á þyngdina. Margir misnota einnig mat og nota hann sem staðgengil fyrir andlega vellíðan. Sumir sniðganga mat eða gleypa hann í heilu lagi, án þess hvorki að njóta hans né smakka.


Hvernig væri líf þitt ef þú myndir hlúa að samskiptum þínum við mat og líkama þinn eins og þú kæmir fram við ástvini þína? Með nærgætni, húmor, góðum samskiptum, hreinskilni, virðingu og ást?
       Næst þegar þú borðar huggunarmat - gerðu það þá með fullri vitund og án nokkurs samviskubits og njóttu allrar þeirrar andlegrar og líkamlegrar næringar sem það færir þér.


Þessi grein birtist í fréttabréfi Transform í febrúar 2011.