Linsubauna- og grænmetispate
11/01/2010 21:51
250 gr. linsubaunir (búið að láta liggja í bleyti og sjóða eftir leiðbeiningum)
1 box sveppir
1 laukur
1 rauð paprika
½ blaðlaukur
Smá fersk chilli (ég set mikið – fer eftir smekk).
Salt
Pipar
Látið baunirnar liggja í bleyti yfir nótt og sjóðið samkvæmt leiðbeiningum.
Steikið allt grænmeti þar til það er orðið mjúkt og gott.
Saltið og piprið eftir smekk.
Skellið öllu í matvinnsluvél eða góðan blandara, þar til áferðin er orðin mjúk.
Hollt og gott er að skera niður grænmeti, t.d. gúrku, papriku eða gulrætur og dýfa ofaní. (Einnig er hægt að nota brauðmeti til þess að dýfa í pate-ið).
Verði ykkur að góðu...
Guðrún Kristín Blöndal