Hristinganámskeið
Námskeið fyrir alla sem vilja læra að gera holla og einfalda hristinga og safa til þess bæta mataræðið og auka vellíðan!
Fjallað verður meðal annars um:
- Margvíslega kosti þess að drekka hristinga.
- Galdurinn við að gera hristinga bæði holla og bragðgóða.
- Kosti þess að gera okkar eigin mjólk (sýnikennsla).
-
Hvernig við bætum hristingum inn í mataræðið á einfaldan
og fljótlegan hátt (og spörum nokkrar krónur í leiðinni).
Kennd verða einföld og gagnleg ráð og spurningum svarað.
Allir safar og hristingar verða útbúnir á staðnum og að sjálfsögðu fá allir að smakka. Að auki fá þátttakendur uppskriftirnar með sér heim.
(Námskeiðið hentar einnig mjög vel fólki með mjólkur-, glúten-, eða sykuróþol).
Leiðbeinandi: Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir
Skráning á hrafnhildur@transform.is
Verð kr. 5.000,-
20% afsláttur fyrir núverandi viðskiptavini Transform.
Næstu námskeið:
Fimmtudaginn 24. maí frá kl. 19-21.
Staðsetning - Þórsstíg 4 (húsnæði SÍMEY á Akureyri)
Ath. Í boði eru námskeið fyrir lokaða hópa. Allir staðir á landinu koma til greina. Nánari upplýsingar hjá Hrafnhildi á hrafnhildur@transform.is