Hollt nammi

Námskeið fyrir alla sem vilja læra að gera hollt og gómsætt nammi fyrir hátíðarnar og önnur tilefni.

Nammi sem gert er úr lifandi fæðu inniheldur mikið magn næringarefna, ólíkt því sem hið hefðbundna nammi gerir. Þar sem það hefur einnig minni áhrif á blóðsykurinn, er ekki fallið í vítahring skyndiorkunnar.  

  • Sýnikennsla þar sem þátttakendur taka virkan þátt.
  • Kennd eru einföld og gagnleg ráð og spurningum svarað.
  • Nammið er útbúið á staðnum og að sjálfsögðu fá allir að smakka
    (og kannski smá "nesti líka!)". Að auki fá þátttakendur uppskriftirnar með sér heim.

Námskeiðið hentar öllum sem vilja bæta heilsu sína og vellíðan, ásamt því að auka þekkingu
á góðri næringu.
(Námskeiðið hentar einnig mjög vel fólki með mjólkur-, glúten-, eða sykuróþol).

Leiðbeinandi: Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir, heilsuþjálfi.

Verð: Kr. 6.000,-
 

Næstu námskeið:

Fyrirhuguð námskeið í apríl á Akureyri.
Hafðu samband fyrir forskráningu.

 

Ath. Í boði eru námskeið fyrir lokaða hópa. Allir staðir á landinu koma til greina. Nánari upplýsingar hjá Hrafnhildi á hrafnhildur@transform.is