Hollir eftirréttir

Hollir eftirréttir 

(2,5 tíma námskeið) 

Transform heldur námskeið fyrir þá sem vilja læra að gera holla, einfalda og einstaklega ljúffenga eftirrétti og millimálabita sem bæta mataræðið og auka vellíðan! 

Fjallað verður meðal annars um:

  • Hversu einfalt er að gera holla eftirrétti og millimálabita með hollu og góðu hráefni, á skömmum tíma.
  • Sýnikennsla á margvíslegum eftirréttum, meðal annars: 
  • Hollasti ís í heimi?!
  • Hollt brownies
  • Hollar sætar sósur og gæðasúkkulaði
  • Orkubitar sem slá öllum öðrum út
  • Súkkulaðimús sem hægt væri að borða í morgunmat...

Kennd verða einföld og gagnleg ráð og spurningum svarað.

Allur matur verður útbúinn á staðnum og að sjálfsögðu fá allir nóg að smakka. Að auki fá þátttakendur uppskriftirnar með sér heim.

(Námskeiðið hentar einnig mjög vel fólki með mjólkur-, glúten-, eða sykuróþol).

 

Skráning á hrafnhildur@transform.is  

Leiðbeinandi: Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir

Verð: kr. 7000   

 

Einungis tvö námskeið í boði!

Fimmtudaginn 3. maí frá kl. 18-20.30.

Laugardaginn 5. maí frá kl. 11-13.30.

Staðsetning - Þórsstíg 4 (húsnæði SÍMEY á Akureyri)