Gulrótar- og selleríbaka
11/01/2010 22:34
500 gr. gulrætur
2 stönglar sellerí
2 msk smjör
½ laukur
Salt og pipar
¼ tsk múskat
¼ tsk grænmetiskraftur
1 tsk sítrónusafi
Gulrætur og sellerí soðið, sett í blandara og maukað niður. Laukurinn steiktur í smjöri þar til hann er orðin vel gullin, maukinu blandað saman við og kryddað.
Sett í bökuform í ofn við 180c í 20-30 mínútur.
Anna Lísa Stefánsdóttir