Besti hummusinn

Það eina sem er hægt er að kvarta yfir varðandi þennan hummus - er að hann klárast allt of fljótt!

Ljúffengur hummus
Undirbúningstími: 5 mínútur
Eldunartími: 10 mínútur
 
Innihald:
2 bollar tilbúnar kjúklingabaunir (allt í lagi að nota baunir úr dós sem þú hefur skolað vel en það er enn betra að nota baunir sem þú hefur lagt í bleyti og eldað).
5 msk Tahini (öðru nafni sesamsmjör) Tahini gefur einstaklega mjúka áferð, bragðbætir og er að auki fullt af járni, kalki og trefjum.
Smá gróft sjávarsalt (að smekk, eða ca 1 tsk.)
Kreistur safi úr einni sítrónu.
2-3 hvítlauksgeirar (meira eða minna eftir smekk - ég set oft ansi mikið , enda sjúk í hvítlauk)
3 msk góð ólífuolía (extra virgin)
1/4 bolli vatn (meira eða minna eftir smekk - fer eftir því hvort þú vilt hafa hummusinn þykkan eða þunnan).

Aðferð:
Settu allt nema vatnið í matvinnsluvél (eða góðan blandara) og blandaðu þar til áferðin er mjúk og flott. Bættu smá vatni saman við þar til þér finnst þykktin vera fín. 

Ef þú berð Hummusinn á borð fyrir gesti er gaman að skera niður smá steinselju og setja ofan á, eða jafnvel pínu paprikuduft.

Hummus geymist vel í loftæmdu íláti í ískáp - a.m.k. eina viku.

Með hverju borða ég hummus?
Það er virkilega gott að setja t.d. gróf pítubrauð í ofn, baka þau frekar vel, þar til þau eru orðin smá stökk og skera svo niður eins og pizzu og borða með hummus. Hummus er einnig tilvalin ídýfa með niðursneiddu grænmeti eða snakki og mjög góð í samlokur í staðin fyrir smjör.