Af hverju vatn?

Flest okkar eru meðvituð um nauðsyn þess að drekka nóg vatn. Vatnið sem við þörfnumst hvern einasta dag hjálpar líffærum okkar að starfa, gefur húðinni raka, heldur henni hreinni og gerir líkamanum kleift að hreyfa sig. Þrátt fyrir þessa vitneskju reynist mörgum erfitt að drekka allt það vatn sem líkami okkar á skilið. Við eigum auk þess það til að svitna mikið á sumrin, oft við útiveru og leik og við það eitt að eyða tíma úti í hlýjunni. Þá er enn mikilvægara að muna eftir vatninu!
 
Þeir sem drekka ekki nóg vatn geta fundið fyrir ýmsum líkamlegum óþægindum, s.s. lélegri meltingarstarfsemi, óskýrri hugsun, óhreinni húð, höfuðverk, andremmu og almennum slappleika.
 
Gerðu sjálfri/sjálfum þér greiða og settu stórt vatnsglas á náttborðið hjá þér á hverju kvöldi og drekktu það svo um leið og þú vaknar á morgnana. Vatnsdrykkja að morgni hreinsar út eiturefni frá deginum áður og gerir kerfið þitt tilbúið fyrir komandi dag. Hafðu einnig alltaf vatnsflösku við hendina, hvort sem þú ert á ferðinni eða situr við skrifborðið. Að sjá vatnsbrúsann minnir þig á að drekka þegar þú ert þyrst(ur). Þú finnur það líklega við fyrsta sopa hversu mikið vatn þú þarft þá stundina. Einn sopi gæti nægt þér en þú gætir líka þurft á hálfum brúsanum að halda. Ef þú drekkur nóg vatn yfir daginn þá er ólíklegt að þig þyrsti fyrir háttinn. Þetta er góðs viti, því það truflar auðvitað nætursvefninn ef þú vaknar til þess að fara á klósettið.
 
Hvað með vatnsgæði og bragð? Hér á Íslandi er eitt besta vatn veraldar. Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af gæðum vatnsins sem rennur um kranana, ólíkt fólki í mörgum öðrum löndum. Þrátt fyrir það eru sumir ekkert allt of hrifnir af "bragði" vatnsins og öðrum leiðist tilbreytingaleysið. Þá er um að gera að bragðbæta vatnið á náttúrulegan hátt. Prófaðu að bæta aðeins af myntulaufum út í vatnið eða kreista einhvern sítrusávöxt út í það, t.d. sítrónu eða appelsínu. Prófaðu þig áfram með frosna ávexti og ferkar kryddjurtir. Mjög sniðugt er að frysta sítrónuvatn með smá berki í klakaboxi og bæta því út í vatnið. Hrátt grænmeti og ávextir eru einnig full af vatni og hjálpa til við að viðhalda góðu rakajafnvægi í líkamanum. Sama má segja um ferska safa og góð te.
 
Við finnum oft ekki fyrir þorsta fyrr en líkami okkar er kominn á stig ofþorrnunar og oft ruglumst við á þorsta og hungri. Prófaðu að fylgjast vel með vatnsdrykkju þinni og finndu hvað hentar þér best. Ég skora á þig að hella þér í vatnið og uppskera vellíðanina sem fylgir því að "vökva" líkama okkar vel!