Af hverju spírur?

Fræ sýna lífskraft sinn og orku á vorin með því að spíra. Spírur af öllum stærðum og gerðum innihalda öll helstu byggingarefnin sem við þurfum í formi vítamína, ensíma, ammínósýra og einfaldar sykrur. Þær eru mjög auðmeltanlegar og gefa því líkamanum beinan aðgang að ferskum næringarefnunum. Nýlegar rannsóknir gerðar af Krabbameinsfélagi Bandaríkjanna, (the American Cancer Society) styðja það sem heildræn næringarfræði hefur haldið fram árum saman: að spírur verndi gegn krabbameini, hafi mjög hátt magn brávarnarefna (andoxunarefna) og innihaldi að auki A, C og D vítamín.

Spírur hafa kælandi áhrif á líkamann þegar þær eru borðaðar hráar. Því er best að neyta þeirra á vorin eða sumrin eða af fólki sem er oft heitt. Þeir sem finna oftar fyrir kulda ættu að prófa að gufusjóða spírurnar eða hafa þær sem meðlæti með heitum mat eins og súpu, til þess að forðast það að kólna enn meira.

Til eru margar gómsætar tegundir af spírum, allar með mismunandi bragð og áferð, t.d.: alfaalfa, mungbaunir, linsubaunir, sólblómaspírur, blómkálsspírur, kjúklingabaunir og adukibaunir.

Hér eru nokkrar góðar aðferðir við að borða meira af spírum:

· Settu spírur út á salatið þitt.

· Bættu því við annað grænmeti, t.d. í vefjur (fajitas) eða steikt asískt grænmeti (stir-fry).

· Notaðu spírur sem skraut með súpunni þinni, pottréttinum eða eggjahrærunni.

· Bættu spírum út á hrísgrjónin þín eða annað heilkorn sem þú borðar.  

· Settu spírur í samlokuna þína með/eða í staðin fyrir salat.

Borðið spírur og njótið lífsins!