Af hverju kínóa?
Quinoa, (borið fram og oft skrifað “kínóa”) er ótrúlega næringarríkt og orkugefandi heilkorn sem hefur mjög stuttan eldunartíma (15 mínútur). Kínóa hefur verið ræktað og borðað í 8 þúsund ár í Anders fjöllunum í Suður Ameríku.
Eiginleikar kínóa
- Inniheldur allar amínósýrurnar átta, sem gera það að fullkomnu próteini.
- Inniheldur jafnmikið prótein og mjólk.
- Inniheldur mikið af B-vítamíni, járni, sinki, kalíni, kalki og E-vítamíni.
- Er laust við glútein og auðvelt í meltingu.
- Fullkominn matur til þess að auka úthald. (Frábær fæða fyrir íþróttafólk!)
- Styrkir nýrun, hjartað og lungun.
Notkun
Þegar kínóa eldast, opnast ytri hluti kornsins. Sá hluti helst nokkuð stökkur á meðan kornið sjálft verður mjúkt. Þessar andstæður gera kornið enn gómsætara. Sparaðu tíma með því að elda mikið í einu. Geymdu afganginn í lofttæmdu íláti inni í ísskáp og notaðu hann aftur og aftur. Það er einfalt að endurhita kínóa. Settu t.d. mjólk, sojamjólk eða aðrar mjólkurtegundir út í og þá er morgungrauturinn tilbúinn. Út í grautinn getur þú bætt þurrkuðum ávöxtum, hnetum og kanil. Einnig er hægt að sleppa mjólkinni og blanda þess í stað smátt niðurskornu grænmeti út í og hafa sem meðlæti. Hægt er að geyma óeldað kínóa á þurrum, köldum og dimmum stað í allt að eitt ár.
Undirbúningur
Það þarf ávallt að skola quinoa mjög vel áður en það er eldað. Þannig skolum við burt beiskum eiturefnum sem kallast saponin. Þú sérð hvernig froða myndast þegar þú skolar það. Það er saponíið sem er að skolast af korninu. Kornið er yfirleitt skolað vel áður en það er selt í búðir en það er betra að skola það sjálfur líka. Settu það einfaldlega í sigti og skolaðu með vatni.
Sjá uppskriftir