Af hverju hýðishrísgrjón?

 

Heilkorn eru úrvalsfæða og innihalda næringarefni sem eru líkama okkar mjög nauðsynleg. Þau gefa okkur langvarandi orku og úthald vegna þess að líkaminn er lengi að vinna úr þeim. Besta leiðin til þess að bæta heilkornum við daglegt matarræði þitt er að prófa sig áfram og finna korn sem þér líkar vel.

Hýðishrísgrjón hafa heilt hýði, en það er einmitt hýðið sem inniheldur flest öll næringarefnin. Hýðið gegnir því hlutverki að vernda kornið, næringarefnin og fitusýrurnar. Í hýðishrísgrjónum er meira af B-vítamínum heldur en í nokkru öðru korni. Það inniheldur að auki járn, E-vítamín, amínósýrur og ómettaða fitusýru. Hlutfall trefja í hýðishrísgrjónum er hátt og eru grjónin 80% flókin kolvetni. Hýðishrísgrjón eru orkurík heilkorn. Það tekur líkamann mun lengri tíma að melta þau heldur en hvít hrísgrjón og þau gefa okkur orku sem endist mun lengur.

Phytic sýra er þessu heilkorni náttúrulegt. Flest korn innihalda sýruna að einhverju leiti en það er ansi hátt magn í hýðishrísgrjónum. Ef sýran kemst í þarmana, getur hún haft áhrif á upptöku kalsíums, magnesíums, kopars, járns og sinks og hindrað líkamann í að nýta þessi næringarefni. Þess vegna þarf að muna eftir því að leggja heilkornið í bleyti þar sem það eyðir öllum áhrifum sýrunnar með því að mynda nauðsynleg ensím og auka losun næringarefnanna. Sumir trúa því þó að heilkornið þurfi ekki að leggja í bleyti og að þannig muni kornið nýtast þér betur og gefa þér meiri orku sem endist þér lengur.

Áhrif á líkamann

  • Framleiðir orku
  • Eykur góða meltingu
  • Svalar þorsta
  • Dregur úr einkennum niðurgangs
  • Léttir einkenni þunglyndis

                                             

Sjá uppskriftir