Af hverju blaðgrænt grænmeti
Blaðgrænt grænmeti er eitt einfaldasta og besta grænmetið sem þú getur bætt við þitt daglega mataræði. Það er stútfullt af orku og næringarefnum. Blöð þess hafa teygt sig í átt til sólar frá því það byrjaði að vaxa og drukkið sólarljós á meðan það framleiðir súrefni. Meðal úrvals grænmetis má nefna garðkál (kale), grænkál (collard greens), Swiss chard, mustard (mustard greens), klettasalat (arugula), dandelion (dandelion greens), spergilkál, vætukarsi (watercress), rófublöð (beet greens), bok choy, kínakál, hvítkál og spínat.
Hvernig hjálpar blaðgrænt grænmeti líkama þínum? Það er ríkt af kalki, magnesíum, járni, kalíni (potassium), fosfór, sinki og er hnausafullt af A, C, E og K vítamínum. Það er líka stútfullt af trefjum, fólinsýru, blaðgrænu og mörgum öðrum næringarefnum.
Við tengjum græna litinn við vorið, sem er einmitt tíminn til þess að endurnýja og virkja nauðsynlega orku. Í kínverskum lækningum er græni liturinn tengur lifrinni, tilfinningalegu jafnvægi og hugmyndaflugi. Blaðgrænt grænmeti hjálpar til við að hreinsa blóðið, styrkja ónæmiskerfið, bæta lifrar-, gallblöðru og nýrnastarfsemina, minnka þunglyndi, hreinsa stíflur, bæta blóðrásina og halda húðinni hreinni.
Það er allt of lítið af blaðgrænu grænmeti í matarvenjum nútímans. Mörg okkar eru ekki vön að borða það og vitum ekki hvernig við eigum að matreiða það. Byrjaðu til dæmis á uppskriftinni hér að neðan. Hún gæti ekki verið einfaldari. Prófaðu þig svo áfram og keyptu eitthvað nýtt blaðgrænt grænmeti í hvert skipti sem þú ferð í búðina. Áður en þú veist af verður þú búin/n að finna eitthvað sem þér líkar vel og furðar þig á því hvernig þú gast sleppt því áður!