HRAFNHILDUR REYKJALÍN VIGFÚSDÓTTIR

Ég er hamingjusöm fjölskyldukona og menntaður heilsuþjálfi og markþjálfi ásamt því að vera eigandi og framkvæmdarstjóri Transform ehf. Ég hef mikla ástríðu fyrir því að lifa hamingjusömu og heilbrigðu lífi og að hjálpa öðrum að gera slíkt hið sama. Þess vegna ákvað ég að bæta enn frekar við verkfærakistuna mína og mun útskrifast með próf úr Jákvæðri Sálfræði, vorið 2019. 

Mataróþol, veikindi, aukakíló og vanlíðan leiddu mig á þessa braut, ásamt brennandi áhuga á öllu sem viðkemur heilsu. Ég hef upplifað bæði áföll og erfiðleika og hef markvisst unnið með það á margvíslega og uppbyggilega vegu. Ég bý að mikilli reynslu og þekkingu og tel það vera einstök forréttindi að aðstoðað fólk við að auka lífsgæði sín með því að að gera breytingar á mataræði og líffsstíl til langframa.

Ég hef unnið með einstaklingum, hjónum og hópum. Ég hef einnig haldið fjölmarga fyrirlestra fyrir fyrirtæki og hópa ásamt því að bjóða uppá ýmiskonar matreiðslunámskeið, t.a.m. "Hollt nammi" og "Hristinganámskeið". Ég vinn með fólki víðsvegar um heiminn og þá er einstaklega hentugt að notast við skype við þjálfunina.

“Kikkið” mitt er að vinna með fólki sem ætlar sér að gera breytingar á lífi sínu til hins betra – fólki sem er ekki að leita eftir “enn einum kúrnum" eða "quick fix" og er tilbúið til þess að leggja sitt af mörkum fyrir sjálft sig.

Ég býð upp á frían kynningartíma í heilsu- og markþjálfuninni ÁN nokkurrar skuldbindingar af þinni hálfu. Í þessum tíma færð þú ómetanlegt tækifæri til þess að ræða um þína eigin heilsu, vellíðan og markmið. Þá útskýri ég einnig betur hvernig heilsuþjálfun Transform virkar og við skoðum í sameiningu hvort sú einstaklingsmiðaða aðferð sé það sem henti þér best.

 

Saman getum við komist að því hvað hentar þér best!