Hvað finnst þeim?
" Veturinn 2010 - 2011 var ég í heilsuþjálfun hjá Hrafnhildi hjá Transform. Ég ákvað að prufa, ég hafði engu að tapa. Það var ekkert alvarlegt sem hrjáði mig, fyrir utan að á þessum tíma var ég undir miklu álagi í vinnunni og mér veitti ekki af svolítilli hjálp við að hugsa um heilsuna.
Ég vissi reyndar fyrirfram hversu hæfileikarík og metnaðarfull Hrafnhildur er, en það kom mér samt á óvart hversu mikill styrkur hún var fyrir mig.
Á tveggja vikna fresti spjölluðum við saman, hún gaf sér góðan tíma og hlustaði vel. Hún gaf mér ráð og svör sem hún mat út frá heildrænni nálgun. Engar öfgar, heldur góð og gagnleg ráð sem oftast var auðvelt að koma í verk þrátt fyrir miklar annir.
Hrafnhildur er mikill viskubrunnur og deildi ýmsu með mér, allt frá upplýsingum um mataræði og að ráðleggingum um tímastjórnun. Enn þann dag í dag nýti ég margt af því sem hún ráðlagði mér.
Ég er mjög fegin að ég ákvað að slá til og er mjög þakklát fyrir þennan stuðning og lærdóm.
Ég mæli eindregið með heilsuþjálfun hjá Transform, ég er sannfærð um að hún geti gagnast flestum".
Aðalheiður Atladóttir, arkitekt
--- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- -->
"Ég frétti af Hrafnhildi og Transform hjá sjúkraþjálfaranum mínum. Ég var illa á mig komin líkamlega og voru liðverkir þar vestir. Ég hugsaði með mér að „ég gæti svo sem talað við hana“ og séð hvað hún hefur upp á að bjóða og sé ég sko ekki eftir því. Ég lét Hrafnhildi strax vita að ég væri engan veginn tilbúin að takast á við öfgar eins og að gerast grænmetisæta eða eingöngu borða lífrænt ræktað. Hrafnhildur sagði mér þá að hennar leiðsögn væri algjörlega sniðin eftir mínum þörfum og væntingum og það stóðst fullkomlega. Það er ekki nóg með að Hrafnhildur sé viskubrunnur góðra ráða þegar kemur að mataræði heldur er hún einnig góður mannþekkjari. Áður en ég vissi af var ég búin að segja henni frá ýmsu um sjálfa mig sem ég sagði ENGUM frá. Strax í fyrsta símaviðtali var ég heilluð af henni, hún hefur einstaklega hlýja og og traustvekjandi rödd. Öll símtölin voru uppbyggileg og jákvæð, hún einblínir alltaf á það jákvæða þótt svo að ég væri eitthvað neikvæð. Ég var alltaf full af bjartsýni og jákvæðni eftir að hafa talað við hana.
Ég fór strax að fylgja hennar ráðleggingum í mataræði og fljótlega fann ég fyrir breytingum einkum hvað varðar úthald og vellíðan. Stuttu síðar mátti svo sjá það á vigtinni. Ég datt út um tíma en snéri fljótt aftur á rétta braut því ég fann verulegann mun á mér hvað varðar orku og úthald. Hrafnhildur tók ekki eingöngu mataræðið í gegn heldur fékk hún mig einnig til að hugsa betur um andlegu hliðina. Ég lærði að þekkja mig betur og lesa í skilaboð líkamanns og það sem mér þykir best - að láta mér þykja vænna um sjálfa mig.
Hrafnhildur er snillingur og eins og ég segi stundum „það ættu allir að hafa eina Hrafnhildi í lífi sínu". Ég mæli eindregið með að þú leitir til hennar, ég er viss um að hún getur leiðbeint þér.
Takk fyrir mig Hrafnhildur".
Matthildur Stefánsdóttir
--- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- -->
"Mér finnst ég svo heppin. Svo heppin að eiga góða vinkonu sem benti mér á Hrafnhildi og síðuna hennar Transform.is. Við vorum að spjalla saman um átök og megranir, eins og svo oft áður - en ekki hvað - en það var verst að þessir öfgafullu kúrar og megranir virkuðu ekki á mig.
Um leið og ég var búin að kynna mér síðuna hennar ákvað ég að prófa frían prufutíma. Eftir hann var ekki aftur snúið, sem betur fer. Prógrammið sem við settum upp í sameiningu var algjörlega sniðið að mér en ekki eitthvað staðlað blað sem á að henta öllum. Í sameiningu komumst við að því að ég er með glútenóþol. Það var síðar staðfest af lækni. Breytingarnar sem hafa átt sér stað eru frábærar. Ég er laus við alla vondu liðverkina sem fylgdu glútenóþolinu, mér hefur sjaldan liðið betur en nú, ég er fróðari um líkamann minn, heilsu og næringu. Bónusinn er að talan á vigtinni hefur ekki verið svona lág síðan í grunnskóla.
Hrafnhildur er einstaklega hvetjandi, hún er fagmaður og kann sitt fag virkilega vel. Hún er dugleg við að senda mér uppskriftir og þar sem ég er með glútenóþol, hefur hún sniðið prógrammið alveg eftir því. Ég held að hvorki ég né fjölskyldan mín hefðum trúað því að ég myndi nokkurn tímann mæta með hráfæðikökur í eftirrétt á ættarmót en sú er nú samt raunin. Í fyrsta sinn finnst mér virkilega gaman að dunda mér í eldhúsinu, úbúa baunarétti í bland við fisk og kjöt. En ég er ekki sú eina sem nýt góðs af þessu heldur fjölskyldan öll. Þau eru nú hæstánægð með að fá baunarétt í kvöldmatinn og kannski neið af hráfæðiköku í eftirrétt....
Þegar ég byrjaði hjá Hrafnhildi þekkti ég hana ekki neitt. Nú níu mánuðum síðar leita ég enn til hennar og lít á hana sem vinkonu mína. Hún hefur hjálpað mér, kennt mér og hvatt mig alveg ótrúlega mikið. Fyrir það verð ég henni ævinlega þakklát."
Sandra Finnsdóttir
--- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- -->
"Ég hafði heyrt góða hluti um Hrafnhildi hjá Transform og var forvitin. Mér fannst mig vanta orku dags-daglega, ég æfi almennt frekar mikið og mig vantaði að fá meira útúr fæðunni! Ég hreinlega hafði ekki tíma til að leggjast yfir hlutina sjálf og ákvað því að slá til og prófa heilsuþjálfun.
Hrafnhildur er mikill viskubrunnur um alla þætti sem snúa að fæðu og hlutirnir eru skoðaðir útfrá þér og þér einni/einum! Svo er hún Hrafnhildur líka laus við alla tilgerð og öfgar, og það er mikill plús.
Mataræðið á heimilinu var skoðað vel og vandlega og mikið prófað. Fjölskyldan hefur tekið ástfóstri við hristinganna og safana sem ég innleiddi inná heimilið í kjölfar heilsuþjálfunarinnar, ásamt mörgu öðru.
Við unnum líka í andlegu hliðinni, ég er þessi streitusækna týpa og því gott að fá Hrafnhildi í liðs við sig að losa um þar. Alltaf gott að geta gefið sér tíma fyrir sjálfan sig og talað bara um SIG – erfitt í fyrstu en lærðist ótrúlega vel.
Að mínu mati finnst mér það skipta mestu máli þegar maður fer í þessa vinnu með sjálfan sig er að leggja það á sig að vinna vel og nýta sér þá fræðslu og fagmennsku sem i boði er. Kýla á þetta!
Ég er ánægð með hvernig ég nýtti mér mér prógrammið hjá Transform en sú vinna heldur að sjálfsögðu áfram því nú hefur í raun opnast fyrir mér nýr heimur, sem er mjög spennandi :)! "
Guðrún Kristín Blöndal, hokkíkona ársins 2010
--- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- -->
"Ég hafði lesið um nám við Integrative Nutrition og sá að þetta var eitthvað sem höfðaði virkilega til mín. Mig langaði til að læra akkúrat þetta :) Þegar ég sá bækling frá Hrafnhildi ákvað ég að skella mér í heilsuþjálfun og sjá hvort þetta væri ekki örugglega það sem ég hélt. Og viti menn, þetta var/er svo miklu, miklu meira.
Ég, sem er svo heilsusamleg í mataræðinu og predika yfir öðrum hvernig þau "eiga" að borða, var alltaf að eltast við 10 auka kíló. Ég skildi þetta loksins þegar ég hóf þjálfunina hjá Hrafnhildi, að ég gleymdi aðalatriðinu MÉR og MÍNUM. Hrafnhildur kenndi mér hvað það er sem skiptir máli í lífinu og að það er ekki nóg að borða vel ef maður er ekki að hugsa vel um sig á annan hátt. Ég lærði að hugsa vel um mig og fjölskylduna mína, bæði hvað varðar tíma og mataræði.
Hrafnhildur er alveg frábær manneskja og akkúrat það sem ég þurfti til að snúa blaðinu rétt. Þegar ég var svo hálfnuð í þjálfuninni, fékk ég kjarkinn til að trúa á sjálfa mig og skráði mig í fjarnám á ENSKU hjá Integrative Nutrition :)
Tvöföld áskorun með góðri hjálp Yndislegs heilsuþjálfa :)"
Inga Lóa Birgisdóttir, heilsuþjálfi
--- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- -->
"Ég var heima í fæðingarorlofi með tvö lítil börn og langaði að taka mér tak fyrir mig og fjölskyldu mína og verða heilbrigðari. Ég var búin að reyna nokkrar öfgakenndar aðferðir og það rann ekki vel í aðra fjölskyldumeðlimi. Einn daginn rakst ég á síðuna hennar Hrafnhildar, transform.is og fékk sterklega á tilfinninguna að þetta væri eitthvað fyrir mig þegar ég las um “heildræna nálgun” og “sama mataræði hentar ekki öllum”.
Það þarf ekki að fara mörgum orðum um þær breytingar sem urðu á lífsstíl okkar fjölskyldunnar og fjölskyldumeðlimirnir áttuðu sig ekki á því að það væri verið að taka út hitt og þetta sem ég var sammála Hrafnhildi um að væri ekki gott fyrir okkur í miklu magni. Kvöldmaturinn fór úr því að vera “take away” alla vega 3x í viku í kannski 1-2x í mánuði, jafnvel minna. Hollari matur og meðlæti varð að venju og allir borða með bestu list. Allt reyndist þetta einstaklega einfalt í framkvæmd.
Hrafnhildur hvatti mig áfram að prufa hitt og þetta sem ég hafði aldrei hugsað um að smakka. Hún sendi mér margar virkilega góðar uppskriftir og virkilega áhugaverða punkta og upplýsingar um mat og annað sem tengist heilsunni. Allt þetta var sett upp á þann hátt að auðvelt var að lesa þetta yfir, og upplýsingarnar voru skýrar og hjálplegar.
Þakka þér kæra Hrafnhildur fyrir að hjálpa mér að gera mig og fjölskyldu mína heilbrigðari :-D"
Guðrún Arna Sigurðardóttir, móðir og íþróttafræðingur
--- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- -->
"Ég ákvað að slá til og prófa heilsuþjálfun Transform eftir að hafa lesið eitt fréttabréfið síðast liðið vor. Þar var talað um vorhreingerningar og hversu gott væri að losa sig við sitthvað úr skápunum sem hefði dagað þar uppi og heimfæra það svo á líkamann. Ég ákvað að kíkja í skápinn minn og athuga hvort ég væri nokkuð ein af þeim sem ríghéldi í eitthvað gamalt og úr sér gengið... til að gera langa sögu stutta þá verður að segjast að mér dauðbrá! Hver hefði trúað því að þarna leyndust nærföt keypt á Algarve 1994 (og höfðu ekki verið notuð síðan)? Ég nánast tæmdi skápinn...og þvílík losun sem það var, mest þó andleg!
Ég fór yfir mína stöðu með Hrafnhildi, lagði upp með ákveðin áform og setti mér markmið. Við heyrðumst reglulega í síma og hittumst annað slagið og gáfu þessir tímar mér ótrúlega mikið. Það sem mér finnst þó standa upp úr núna þegar ég hugsa til baka er hversu gott var að gefa sjálfri mér þann tíma sem fór í samtölin okkar. Þetta voru heilagar stundir fyrir mér þar sem ég var í ró og næði og fékk tíma til að tala bara um sjálfa mig en það er eitthvað sem maður gerir allt of sjaldan.
Það atvikaðist einhvern veginn svo að ég fór að vinna í allt öðrum hlutum en ég lagði upp með í byrjun. Fyrst einblíndi ég bara á líkamlega þáttinn en þegar líða tók á vann ég mun meira í öðrum hlutum sem skila sér síðan aftur í líkamlegri vellíðan, allt helst þetta jú í hendur.
Það sem hrjáði mig mikið á þessum tíma var að líf mitt einkenndist af miklu stressi og fór ég markvisst að reyna að draga úr því, skipti m.a. um atvinnu sem var heilmikið stökk. Ég skoðaði hvar ég var ánægð með sjálfa mig og hvar mig langaði að bæta mig og hefur þetta verið heilmikil áskorun að svo ótalmörgu leyti.
Ég er lögð að stað í ferðalag, er hvergi nærri hætt enda er þetta allt of gefandi til þess! Hrafnhildi þakka ég fyrir leiðarlýsingar og eldsneytið. ;o)”
Kristín Björk Gunnarsdóttir, sjálfstæður atvinnurekandi
--- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- ---
"Ég ákvað að slá til og fá frítt kynningarviðtal hjá Transform. Eftir að hafa gert heilsuskýrsluna og séð svart á hvítu hversu slæm heilsan mín var og talað við Hrafnhildi um hvernig hún gæti verið var ekki annað í stöðunni en að vinna með Hrafnhildi í heilsuþjálfun.
Strax í fyrsta tíma fann ég hvernig löngunin að gera betur og vera betri og heilsusamlegri kom æðandi til mín. Mér fannst æðsilegt að geta rætt um mig og líðan mína, bæði andlega sem líkamlega. Á þessum sex mánuðum, sem liðu svo ótrúlega hratt og ég hlakkað til hvers tíma, hef ég eflst mikið. Ég hugsa miklu betur um líkama minn og hvað ég bíð honum og fjölskyldu minni uppá. Ég léttist. Ég fékk aukið sjálfstraust, meiri þekkingu á mataræði og næringu til að velja rétt.
Ég fékk mikla hjálp við að skipuleggja mig og daglegt líf, sem og að setja mér markmið og finna leiðir til að ná þeim. Ég þekki sjálfa mig svo miklu betur, hvað líkaminn minn vill borða og af hverju, hvað líkamann þolir ekki, hvaða langanir og væntingar ég hef til lífsins, hvernig ég vil lifa lífinu og hvernig ekki. Ég hef svo miklu jákvæðara viðhorf og finnst gaman að gera hluti sem áður voru pína.
Þegar ég horfi til baka finnst mér að ég hefði aldrei getað gert allt þetta á þessum tíma og varla fundið fyrir því, þetta var sko ekkert erfitt og verður bara betra og mér líður betur og betur með hverjum deginum. Allt án þess að banna mér nokkuð eða reyna að þrauka eitthvað.
Get ekki mælt nóg með heilsuþjálfuninni þinni Hrafnhildur, finnst þú vera búin að gera kraftaverk fyrir líðan mína og viðhorf."
Freydís Heba Konráðsdóttir
--- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- --- -->
Bestu meðmælin eru orð þeirra sem hafa unnið með Transform!
Þetta hafa þeir meðal annars að segja:
- Hef meiri áhuga á mat og næringu, sem og andlegri heilsu minni.
- Ég hef miklu meiri orku en áður.
- Ég hef tek að mér fleiri verkefni með meiri ánægju.
- Ég hef losnað við allan bjúg!
- Miklu minna stress!
- Ég borða miklu hollari mat og fjölskyldan öll hefur grætt mikið á aukinni þekkingu minni :)
- Búin að venja mig á kosti tímastjórnunar og jákvæðrar hugsunar.
- Ég léttist um 11 kíló og var eiginlega ekki að reyna það!
- Líður betur á sál og líkama.
- Saman fundum við út að ég þjáðist af mataróþoli. Mér líður eins og annari manneskju!
- Ég er að njóta þess að hreyfa mig í fyrsta skipti á ævinni. Engin kvöð, bara ánægja.
Hvernig heilsuþjálfi er Hrafnhildur?
- Jákvæð.
- Ákveðin.
- Tekur eitt skref í einu.
- Miðlar mjög vel upplýsingum.
- Á auðvelt með að setja sig í mín spor.
- Lætur mig um að velja og tekur ekki fyrir mig ákvarðanir.
- Ég fann fyrir mikilli umhyggju fyrir mér og minni vellíðan og það lætur manni líða vel.
- Mjög hvetjandi.
- Aldrei neikvæð eða smámunarsöm. Sér heildarmyndina.
- Hefur mikla þekkingu sem er mjög traustvekjandi.