Hollari jólasmákökur
Það er stór hluti af jólaundirbúningi margra að baka smákökur. Þrátt fyrir að við séum að huga að bættri heilsu og vellíðan þýðir það alls ekki að við megum ekki leyfa okkur eitt né neitt og að við þurfum að horfa í hina áttina í hvert sinn sem við sjáum eitthvað gómsætt. Síður en svo. En valið er alltaf okkar.
Hægt er að borða gómsætar smákökur sem fara mun betur í okkur heldur en þær hefðbundnu gera, bæði andlega og líkamlega. En þrátt fyrir að margar af smáköku-uppskriftunum sem ég hef tekið saman séu ansi hollar og góðar, þá er algjör óþarfi að borða yfir sig af þeim. Njóttu jólaundirbúningsins, nærðu þig á góðum mat sem gaman er að deila með öðrum og gerðu þér dagamun með því að fá þér eina og eina smáköku með góðum og heitum drykk.
Á meðan við njótum jólaundirbúningsins skulum við hafa í huga að það er algjör óþarfi að kaffæra okkur í mat og alls kyns sætindum. Það er býsna erfitt að njóta sín til fullnustu þegar við erum með magaverk af ofáti.
Hugsum um jólin sem yndislegan tíma til að fylla hjörtu okkar af gleði og ánægju og leyfum matnum að vera í mikilvægu aukahlutverki!
Verði ykkur að góðu :)
Heilsukveðjur,
Hrafnhildur
Uppskriftirnar hér að neðan flokkast flestar til glúteinlausra uppskrifta. Þær eru einfaldega léttari í maga, hvort sem um óþol er að ræða eða ekki. Ég skora á þig að prófa! Mundu líka að öllum uppskriftum má breyta. Gerðu þær að þínum með því að bæta í þær, breyta þeim eða sleppa ákveðnum hráefnum. Mestu skiptir að skemmta sér vel í eldhúsinu!