Aðferðin mín

Heildræn nálgun

Ég lít á næringu sem ákveðinn hluta af heildarmyndinni. Ég tel að allir þættir lífs okkar tengist og hafi bein áhrif á það hvernig okkur líður frá degi til dags og hvað við veljum að "nærast" á. Borðar þú of mikið vegna þess að þú þjáist af álagi eða streitu? Vegna starfsins eða sambands við annað fólk? Er svefnleysi eða orkuleysi að gera það að verkum að þú sleppir því að hreyfa þig? Okkar verkefni er að komast að því hvernig ýmsir þættir í lífi þínu hafa bein áhrif hvern á annan.

Sama mataræðið hentar ekki öllum
Hugmyndin á bak við einstaklingsmiðað mataræði er sú að næringarþörf hvers og eins sé einstök. Hingað til hefur þér m.a. verið sagt: "það er öllum hollt að neyta mjólkurvara" eða "fita er óholl, borðaðu fituskert". Ég tel að sú nálgun sé allt of mikil alhæfing. Matur eins er eitur annars - og einmitt þess vegna virka megrunarkúrar ekki til lengri tíma. Ég met ýmsa þætti eins og aldur, heilsu, hreyfingu, blóðflokk, efnaskipti, persónulegan smekk og ýmislegt fleira, til þess að meta hvað hentar þér best.

Allt er næring
Heilbrigð sambönd, gefandi starf, reglubundin líkamsrækt og andleg vellíðan eru mjög nauðsynleg birtingarmynd næringar. Þegar þessi frumnæring er í góðu jafnvægi, þá skiptir auka-næringin - það sem við borðum - ekki jafn miklu máli.

Pýramídinn minn - Heildstæð nálgun
Heildstæð nálgun leggur uppúr næringarlegu jafnvægi: að við borðum meiri gæðamat, lífrænt ræktað grænmeti, ávexti, flókin kolvetni, prótein og vatn en minna af kjöti, sykri og gervifæði líkt og unninni matvöru. Pýramídinn minn er umvafinn frumnæringu, þeim hluta lífs okkar sem fullnægir "hungri" okkar á lífinu og skapar það jafnvægi sem við þurfum.

Ætlunarverkið
Það er draumur minn að hjálpa fólki að öðlast betri heilsu og auka hamingju sína um leið. Þegar okkur líður vel eru okkur allir vegir færir!